
"Flugvélin mun samkvæmt heimildum Víkurfrétta fara frá Keflavíkurflugvelli kl. 07 í fyrramálið með hóp 330 íslenskra starfsmanna og kvenna tölvuleikjafyrirtækisins CCP. Áfangastaðurinn mun vera Puerto Vallerta í Mexíkó og yfirskrift ferðarinnar er menningarferð. CCP er örugglega þekktast fyrir tölvuleikinn EVE ONLINE.
Haft er fyrir víst að tölvufólkið sé nú með krosslagða fingur um að flogið verði frá Keflavík í fyrramálið vestur um haf, því gosaska hefur verið að trufla flugumferð um Keflavíkurflugvöll síðustu daga." vf.is