
Ný útgáfa af FIFA tölvuleikjunum kemur út með árs millibili og eins og berlega kom í ljós í Kópavogi í kvöld eru margir sem bíða þessa árvissa viðburðar með eftirvæntingu. Nokkur hundruð manns lögðu leið sína í verslunina og myndaðist löng biðröð. mbl.is