Við höfum áður lýst öllum helstu stigum lendingarinnar hér. Ferlið hefst klukkan 05:14 í nótt og er sem hér segir (allt að íslenskum tíma):
05:14:34 - Siglingastig losnar
05:24:34 - Hemlun hefst þegar geimfarið snertir lofthjúp Mars
05:28:46 - Fallhlífin opnast við næstum 10g þyngdarhröðun
05:29:07 - Hitaskjöldur losnar
05:30:40 - Bakhlífin losnar og eldflaugakraninn er ræstur
05:31:17 - Curiosity sígur niður úr eldflaugakrananum
05:31:37 - Curiosity snertir yfirborð Mars!
stjornuskodun.blog.is