
Yfirvöld í Ohio munu á morgun taka mann af lífi með einungis einu lyfi en hingað til hefur þremur lyfjategundum verið blandað saman. Verður Ohio fyrsta ríki Bandaríkjanna til þess að beita þessari aðferð við aftökur. Er þetta gert í kjölfar þess að nánast allt fór úrskeiðis við aftöku í ríkinu í september. mbl.is