Héraðsdómur lokar vefslóðum



Aðstandendur iceland.pm (áður deildu.net) kveðast reikna með að flytja í kjölfarið síðuna yfir á vefslóðina nidurhal.org. Héraðsdómurinn kveðst þá gera ráð fyrir að ef svo fer muni verða lagt lögbann á vefslóðina nidurhal.org. Aðstandendur nidurhal.org (áður iceland.pm og þar áður deildu.net) telja að þá muni þeir flytja síðuna yfir á vefslóðina meiraflipp.net. Og svo framvegis. baggalutur.is



source permalink