Í táknmáli kirkjunnar er kirkjunni gjarnan líkt við skip. Skipið er á siglingu yfir lífsins ólgusjó. Jesús Kristur stofnaði kirkjuna, hann er einnig við stýrið og stefnir skipinu í örugga höfn. Meðlimir kirkjunnar eru ekki fullkomnir, hvorki leiðtogar hennar né hinn fjölmenni söfnuður. Kirkjusagan er saga sigra og ósigra, “allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð”, - segir í helgri bók. Það er því kraftaverk að kirkjan skuli hafa lifað af í 2000 ár þrátt fyrir oft misvitra leiðtoga og meðlimi. tru.is