Kveikti í fataskáp Catalinu Ncogo


Bergþóra Guðmundsdóttir, eða Ísafjarðar-Begga eins og hún er oft kölluð, var dæmd í tveggja og hálfs árs fangelsi síðastliðinn föstudag, meðal annars fyrir að kveikja í fötum Catalinu Ncogo, sem hefur stundum verið kölluð Miðbaugsmaddaman. Bergþóra var einnig dæmd fyrir að stinga vinkonu sína þrívegis í höfuðið. Þær eru enn vinkonur. dv.is



source permalink