
"Lára var mikið í fréttum síðasta sumar þegar hún spáði stórum jarðskjálfta á Krýsuvíkursvæðinu klukkan 23:15 hinn 27. júlí. Sá skjálfti reið aldrei yfir. „En mér finnst mjög merkilegt að eldgosið á Fimmvörðuhálsi hafi byrjað klukkan 23:30, en ég sagði 23:15,“ segir Lára sem spáir nú miklum jarðhræringum til viðbótar eldgosinu sem hófst á laugardaginn en segir að enginn þurfi að örvænta." dv.is